|
07.janúar 2012 |
|
Á döfinni hjá sjóðnum er styrktarúthlutun til verkefna vímuefnaforvarna. Úthlutunin mun fara fram á afmælisdegi Susie Rutar þann 14. febrúar nk. Fjárhæðir styrkjanna verða frá 100.000 kr. til 250.000 kr. Umsóknir þurfa að berast fyrir 1. febrúar nk. og má nálgast umsóknareyðublað með því að senda tölvupóst á netfang okkar:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
07.apríl 2011 |
|
Á dögunum var haldinn aðalfundur Styrktarsjóðs Susie Rutar þar sem farið var yfir komandi verkefni og ný stjórn kjörin. Hina nýju stjórn skipa Svanhvít Yrsa Árnadóttir (formaður), Sandra Kristjánsdóttir (gjaldkeri) og Viktoría Rós Gísladóttir. |
|
27.apríl 2010 |
|
Á dögunum var haldinn aðalfundur Styrktarsjóðs Susie Rutar og var ný stjórn kjörin við það tilefni. Stjórnin mun sitja í eitt ár og hana skipa Ösp Árnadóttir (formaður), Svanhvít Yrsa Árnadóttir (varaformaður) og Sandra Kristjánsdóttir. |
|
21.apríl 2010 |
|
Eftir afar góð viðbrögð hefur auglýsingaherferðin Það ætlar enginn að verða fíkill hafist á ný. Auglýsingarnar munu birtast í öllum helstu kvikmyndahúsum landsins næstu vikur. Þess má geta að auglýsingarnar voru tilnefndar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2009 í flokknum ,,Almannaheillaauglýsingar / ljósvakamiðlar". |
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |