Um Susie
Það er ekki oft sem maður kynnist fólki sem nær að setja mark á persónuleika manns eða hafa áhrif á mann á þann hátt að það gleymist aldrei, en þannig var Susie. Þessi áhrif hafði hún á marga enda einstaklega vinamörg stúlka. Fólk sótti í að vera vinir hennar og það var þægilegt að vera í kringum hana. Hún nálgaðist fólk með jákvæðni og var alltaf boðin og búin að hjálpa öðrum, veita aðstoð og stuðning. Hún reyndist mörgum vel.  Það brást ekki að hún sæi jákvæðu hliðina á vandamálinu eða notaði húmor til að gera vandamál bærilegri. Vinum hennar leið eins og hún ætti svar við öllu og það sem hún hafði til málanna að leggja gekk einhvern veginn alltaf upp. Þennan hæfileika nýtti hún meðal annars í starfi sínu innan AA. Hún var öflugur stuðningsaðili og það eru margir sem eiga bata sinn henni að þakka.  Hún bjó yfir leiklistarhæfileikum og átti auðvelt með að tala fyrir framan aðra eða flytja fyrirlestra sem héldu athygli fólks. Það var aldrei lognmolla í kringum hana og henni fylgdi yfirleitt kátína og gleði. Hún  laðaði fram það besta í fari annarra og lét fólk vita af kostum þess. Hún samgladdist alltaf vinum sínum þegar þeir stóðu sig vel og hún lét þá vita af því. Þetta var einstakt.

Susie var einstaklega kraftmikil og lífsglöð og bjó yfir fágætum persónutöfrum. Kraftinn sem hún átti nýtti hún sjaldnast í eigin þágu heldur í að leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið. Hún var mjög virk í Heimdalli og hafði sterkar skoðanir á stjórnmálum og samfélagsmálum. Það eru ekki margar ungar stelpur sem eru svo hliðhollar flokki sínum að þær hafi þolinmæði í að sitja á fundum um skipulagsmál í Grafarvogi en þannig var Susie. Hún gaf sig alla í það sem hún trúði á. Hún tók þátt í forvarnarstarfi af ýmsum toga og lagði meðal annars sitt af mörkum til Jafningjafræðslunnar. Susie kynnti sér vel málefni líðandi stundar og var öflugur þátttakandi sextán daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Hún reyndi líka alltaf að fá alla í kringum sig til að spá í hlutina og hafði gaman af því að skiptast á skoðunum við fólk. Hún var mikill pælari og fleygði sjaldan fram illa ígrunduðum skoðunum heldur var alltaf búin að hugsa þær vel og rökstuddi ætíð mál sitt. Hún notaði viðlíkingar mjög mikið til að sannfæra fólk og þær voru oftast óborganlega fyndnar. Hún var algjör kaffihúsastelpa og hafði gaman af því að reifa málin yfir bolla. Hún bjó yfir miklum sannfæringarkrafti og góðri rökhugsun. Susie skaraði fram úr á svo margvíslegan hátt.

Hún var skapandi, kom vel fyrir sig orði, var góður penni, lærði á fiðlu í mörg ár og samdi ljóð þó að þau væru stundum í hálfkæringi. Hún var einstaklega vel lesin og gat þulið upp helstu bókmenntaverkin eins og ekkert væri. Hún var afburðagreind og það var áberandi í fari hennar.  Hún stóð sig alla tíð vel í skóla. Hún var myndarleg og sjarmerandi og eftir henni var tekið. Það er erfitt að lýsa Susie í nokkrum orðum og þessi texti er alltof fátæklegur fyrir þá sem þekktu hana og öll litbrigði persónuleika hennar. Það eina sem eftir stendur er að Susie var alveg frábær og hún var alveg einstök, af guðsgjöfum átti hún meira en nóg. Hún var öllum sem hana þekktu mikill harmdauði. Skarð hennar verður aldrei fyllt. Eftir stendur þó sú hugsun hversu mikil forréttindi það voru að fá að taka þátt í hluta af lífi hennar og hversu yndislegt það var að eiga hana að.
 

Viltu styrkja sjóðinn?

Allt uppbyggingarstarf sjóðsins byggir á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú mikla velvild sem sjóðnum hefur verið sýnd skiptir því gríðarlegu máli og gerir sjóðnum kleift að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag.

Reikningur sjóðsins er 537-26-500807 og kennitala 500807-0320.

Tengiliðir

styrktarsjodur@gmail.com