| Sjóðurinn |
|
Sviplegt lát Susie Rutar Einarsdóttur hafði mikil áhrif á stóran vinahóp hennar. Hópurinn vill leggja sitt af mörkum til að vinna gegn þeim vágesti sem fíkniefni eru í okkar samfélagi. Fíkniefni kosta fjölda einstaklinga lífið á hverju ári, oftast ungt fólk í blóma lífsins. Frá láti Susiear sumarið 2007 hefur þessi hópur unnið að undirbúningi verkefna sem annars vegar snúa að aðgerðum opinberra aðila á sviði varna gegn fíkniefnum, en hins vegar að verkefnum sem samtök einstaklinga geta unnið í forvarnar- og meðferðarskyni. Hópurinn hefur með samtölum við mikinn fjölda sérfræðinga á þessu sviði, reynt að gera sér grein fyrir hvaða brotalamir eru í forvarnar-, meðferðar- og eftirmeðferðarúrræðum, einkum fyrir ungt fólk á Íslandi. Viðmælendur hópsins eru sammála um að auka þurfi samstarf og samhæfingu aðila, bæði opinberra aðila, sjálfseignastofnana og félagasamtaka. Ekki síst þurfi að ná betur til ungs fólks í framhaldsskólum og efla það til heilbrigðs lífernis án fíkniefna. Umtalsverðu fé sé varið í þennan málaflokk og meta þurfi árangur þess sem gert er eins og kostur er. Fulltrúar hópsins hafa einnig átt fundi með forsætis- og heilbrigðisráðherra. Eftir þessa yfirferð er það niðurstaða hópsins að leggja í fyrstu áherslu á tvö verkefni, sem lesa má um á síðunni um verkefni sjóðsins. Í hópnum starfa eftirtaldir einstaklingar og eru þeir ábyrgir fyrir verkefnum hans: Bolli Thoroddsen, varaborgarfulltrúi og verkefnisstjóri hjá Actavis Group Afrit af samþykktum félagsins: Samþykktir.pdf |
Viltu styrkja sjóðinn? Allt uppbyggingarstarf sjóðsins byggir á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú mikla velvild sem sjóðnum hefur verið sýnd skiptir því gríðarlegu máli og gerir sjóðnum kleift að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag. |
Tengiliðir |