Verkefnin

Það ætlar sér enginn að verða fíkill 

Við í styrktarsjóði Susie Rutar höfum nú ráðist í stærsta verkefni sjóðsins til þessa  og er það  gerð forvarnarauglýsinga í samstarfi við Filmus. Ástæðan fyrir því að sjóðurinn réðst í gerð þessa auglýsinga er sú að hann  vill vekja fólk til umhugsunar um að fíkn gerir ekki mannamun.  Það skiptir ekki máli hver þú ert eða hvaðan þú kemur, hver sem er getur orðið fíkninni að bráð. Fjölskyldur fólks, sem hefur látist af völdum fíkniefna, lagði sjóðnum lið við gerð auglýsinganna með því að deila minningum sínum um hinn látna ástvin með áhorfendum.  Að mati sjóðsins er viðhorf til fíkniefna alltof léttvægt meðal ungs fólks. Margt ungt fólk  sem neytir fíkniefna telur þau vera skaðlausa skemmtun, að þau hafi fulla stjórn á neyslunni og verði aldrei fíklar.  Markmið sjóðsins er að afmá ranga staðalímynd  af þeim sem lenda í klóm fíkniefna.  Sú hugmynd er algeng í þjóðfélaginu að þeir sem ánetjast fíkniefnum hafi sætt miklu mótlæti í lífinu, að fjölskylduaðstæður þeirra hafi verið bágar og svo mætti lengi telja.  Með þessum hugsunarhætti tekst fólki að ýta frá sér hinum blákalda veruleika sem felst í því að fíkn gerir ekki mannamun. Með auglýsingunum vill sjóðurinn koma því á framfæri að það ætlar sér enginn að verða fíkill. Það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur eða hver þú ert, hver sem er getur orðið fíkninni að bráð.  Sjóðurinn vill þakka þeim fjölmörgu aðilum sem komu að þessu verkefni; fólkinu sem sagði sögu sína, Felix Bergssyni fyrir að  taka viðtöl við aðstandendur, Benna Hemm Hemm fyrir tónlistina og síðast en ekki síst Jón Þóri og Hannesi hjá Filmusi sem unnu þetta af mikilli fagmennsku og fóru svo einstaklega vel með þetta viðkvæma efni.


Heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum 

Þann 13. nóvember 2007, fyrir frumkvæði aðstandenda styrktarsjóðs Susie Rutar Einarsdóttur, gerðu menntamálaráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Samband íslenskra framhaldsskólanema og Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema með sér þriggja ára samstarfssamning um verkefnið Heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum.

Markmið verkefnisins eru:

  • Að stuðla að bættri almennri líðan og heilsu nemenda
  • Að efla forvarnir gegn vímuefnum í framhaldsskólum
  • Að bæta og efla ráðgjöf við nemendur á sem flestum sviðum sem snerta velferð þeirra
  • Að hvetja nemendur til að taka ábyrgð á eigin heilsu og stuðla að heilbrigðum lífsháttum


Samninginn í heild má sjá síðu Heilbrigðisráðuneytisins.Aðstandendur Styrktarsjóðs Susie Rutar eru afar þakklátir eftirtöldum aðilum vegna stuðnings þeirra við þetta verkefni: Guðlaugi Þór Þórðarsyni Heilbrigðisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur Menntmálaráðherra,  Þórólfi Þórlindssyni forstjóra Lýðheilsustöðvar og fulltrúum Sambands íslenskra framhaldsskólanema og Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema  

 

 

Viltu styrkja sjóðinn?

Allt uppbyggingarstarf sjóðsins byggir á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú mikla velvild sem sjóðnum hefur verið sýnd skiptir því gríðarlegu máli og gerir sjóðnum kleift að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag.

Reikningur sjóðsins er 537-26-500807 og kennitala 500807-0320.

Tengiliðir

styrktarsjodur@gmail.com