| Forvarnarauglýsing |
| 14.febrúar 2009 |
|
Sjóðurinn er um þessar mundir að leggja lokahönd á forvarnarauglýsingar sem munu birtast á þessu ári. Með auglýsingunum vill sjóðurinn leitast við að leiðrétta þá ranghugmynd sem oft vill verða í samfélaginu um að þeir sem festist í klóm eiturlyfja komi úr erfiðum fjölskylduaðstæðum,hafi þurft að berjast við eitthvað mótlæti í gegnum ævina og svo mætti lengi telja. Hugsunin ,,þetta kemur ekki fyrir mig eða mína" er mjög hættuleg því reynslan sýnir að enginn er óhultur fyrir þeim vágesti sem eiturlyfin eru – enginn. |
Viltu styrkja sjóðinn? Allt uppbyggingarstarf sjóðsins byggir á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja. Sú mikla velvild sem sjóðnum hefur verið sýnd skiptir því gríðarlegu máli og gerir sjóðnum kleift að skapa þá umgjörð sem sjóðurinn starfar við í dag. |
Tengiliðir |